Hunskast í form og hananú!
Um mánaðarmótin ágúst-september byrjaði ég í átaki. Þeir sem hafa mig á facebook fengu alveg að vita af því, ég fór ekkert leynt með það. Ég ákvað að pósta því á facebook að ég væri byrjaður í átaki til að setja smá pressu á mig. Þannig fengu allir að vita að ég væri að reyna að taka á því og gætu þá baunað á mig ef ekkert væri að gerast í þessum málum.
Eins og þeir sem mig þekkja vita þá hef ég síðan á blautu barnsbeini æft og keppt í fótbolta. Núna hafa skórnir ratað upp í hillu og eftir það hafa kílóin hlaðist á kallinn. Í maí í fyrra (2008) þurfti ég að gjöra svo vel að fleygja skónum upp í hillu þar sem að meiðsli í nára voru einfaldlega orðin of slæm til að ég gæti haldið áfram. Þegar ég hætti þá var ég 93 kg og í nokkuð góðu formi. Er nota bene 193 cm á hæð. Núna í sumar var ég kominn með algjört ógéð á sjálfum mér. Var varla búinn að hreyfa á mér gumpinn í rúmt ár og hafði afrekað það að bæta á mig........já haltu þér nú fast..... 30 kg á rúmu ári. Og satt best að segja fór ég nú bara létt með að bæta þessu á mig. Um mánaðarmótin ágúst-september var ég nákvæmlega 123.1 kg í mælingu sem ég fór í. Mig vantaði alltaf einhverja áskorun til að koma mér af stað í hreyfingu aftur. Þá sá ég auglýsingu frá Hróa vini mínum á Facebook þar sem hann auglýsti að hann væri að setja af stað átakskeppni sem átti að standa í 12 vikur og sigurveigarinn fengi x peningaupphæð að launum. Ég hugsaði bara með mér, "hverju hef ég að tapa nema nokkrum kg og lélegu sjálfsáliti?" Ég sendi Hróa línu og skráði mig í keppnina. Hrói og konan hans, Laufey eru dreifingaraðilar Herbalife og þessi keppni var sett á laggirnar í kringum það en það var alls ekkert skilyrði að ég notaði vörur frá Herbalife. Ég mátti alveg nota mínar eigin aðferðir við að ná árangri.

Ég ætla ekki að vera svona þegar ég uppfæri statusinn á fésinu. Sama og þegið
Ég fór í mælingu hjá Hróa þar sem hann vigtaði mig, mældi ummál á kjéllinum og tók svona "fyrir" mynd. Hann tók einnig heilsuskírslu af mér og satt best að segja kom það bæði mér og Hróa á óvart að ég skuli bara yfir höfuð vera á lífi. Þvílíkur viðbjóður sem lifnaðarháttur minn hafði verið.

Ég hefði endað svona um jólin ef ég hefði ekki gripið í taumana...
Ég hófst handa við að taka mig á. Ég byrjaði að fara í ræktina og reyna að vanda það sem ég set ofan í mig. Ég ákvað strax í upphafi að nota engin lóð í þessar 12 vikur. Bara vinna með brennslu og þoltæki og svo með eigin þyngd (sem er nú töluverð). Ég hef s.s. aðallega verið að hlaupa, spinning og allar æfingar geri ég sjálfur án lóða, kviðæfingar, armbeygjur, bakæfingar og þessháttar.

Ég fæ kannski aldrei þetta smetti af því að æfa eins og skeppna en kannski nær maður að slaga eitthvað í áttina að þvottabrettinu á pittaranum. 
Á síðasta miðvikudag fyrir viku voru 9 vikur búnar af keppninni og þá hafði ég losnað við 10 kg slétt. Ég hef verið að nota Herbalife næringu. Ég get alveg viðurkennt það og er bara rosalega ánægður með það sem ég hef kynnst af vörunni. En ég er engin hálfviti og það eruð þið ekki heldur. Ég veit vel að það missir engin 10 kg á 9 vikum bara með því að nota Herbalife. Það er bara ekki þannig. Þetta kostar hörku vinnu, æfingar og aga. En það sem Herbalife hefur gert fyrir mig er að það hefur hjálpað mér að forðast óhollustu og hjálpað mér að fá þá næringu sem ég þarf yfir daginn. Ég hef notað 3 shake á dag og eina heita máltíð. Í stað þess að bora í nefið inn í Hagkaup og vita ekkert hvað ég á að fá mér sem er hollt en ekki óhollt, þá geng ég bara að mínum shake sem vísum og það bara dugar mér fínt. Herbalife hefur s.s. hjálpað mér helling við að halda matarræðinu í lagi. En ekki það, á þessum 9 vikum hefur matarræðið mitt ekki verið neitt 100%. Ég er mannlegur og fell stundum í freistni. Dett stundum í það að standast ekki freistingarnar, sérstaklega um helgar. En á heildina litið hefur matarræðið mitt stórbatnað og hreyfingin að ég held til fyrirmyndar. En 10 kg eru farin, en ég er langt frá því að vera hættur. Im just getting started. Ég hætti ekkert þegar þessar 12 vikur eru búnar. Eftir það byrja ég bara í nýrri keppni, kannski hendi ég bara sjálfur upp keppni. Hver veit.
Ég setti mér nokkur markmið fyrir átakið. Bæði andleg og líkamleg markmið. Svo ég taki dæmi þá setti ég mér markmið að ná að hlaupa 10 km í Gamlárshlaupi ÍR sem hlaupið er á gamlársdag (en ekki hvað) og ég ætlaði að ná að hlaupa 21 km í Reykjavíkurmaraþoni 2010. Kannski eru þetta langsótt markmið. Um mánaðarmótin ágúst-september síðastliðin var ég með andateppu við að beygja mig niður og taka dóttur mína upp í fangið. En ekki lengur, núna er ég búinn að byggja upp þolanlegt grunnþol og er farinn að hlaupa 10 km á bretti. Næst er að koma sér út og hlaupa það úti því þeir sem þekkja til vita að það er langt frá því það sama að hlaupa úti og inni á bretti.
Ég ætla að ná mér í sixpack, en ekki alveg svona sixpack. 
Einnig langar mig bara að láta mér líða betur. Ég vil geta litið í spegil án þess að langa mest til að æla. Mig langar að geta gengið um með hökuna uppi og útgeyslun sem segir "horfið á mig, ég er í formi, mér líður vel.".
Mig langar líka að verða betri í golfi. Ég efast ekkert um að ég á eftir að bæta mig um 2-3 í forgjöf þegar slatti af aukakílóum eru farin fjandans til.
Í kjölfarið á þessu átaki er ég núna að læra að verða einkaþjálfari. Er í einkaþjálfaraskóla World Class og klára það í desember komandi. Ég hef ákveðið að leyfa ykkur sem nenna að lesa þetta blogg að fylgjast með þessu hjá mér.

Hver veit nema ég leyfi ykkur að sjá "fyrir" myndina einn góðan veðurdag, og þá vonandi með góðri "eftir" mynd.
Takk fyrir að lesa. Eruð yndisleg. Sérstaklega þú.
Þú ert með frábært hugarfar, sem að á eftir að koma þér langt í hverju sem að þú tekur þér fyrir hendur.
En hvaða hangs er þetta hérna í tölvunni, það eru 2 vikur eftir...já ekkert svona..áfram með þig :)
Elísa engar áhyggjur, ég kem með eitthvað kaldhæðið og skemmtilegt bráðum. :)
gangi þér æðislega vel, kannski maður komi bara í einkaþjálfun.. haha
Engu að síður, djöfull flott hjá þér. Sixarinn handan við hornið og þolið klárlega meira en hjá flestum...þmt mér!!!
kv Reynir
Til hamingju með þetta!
go Gummi go!
